|
|
|
|
|||
|
|
Jónas Kristjánsson ritstjóri
Fæddur: 5.2. 1940 í Reykjavík
Foreldrar: Anna Pétursdóttir bókari, f. 11.6. 1915 á Akureyri, d. 24.9. 1976, og Kristján Jónasson læknir, f. 12.5. 1914 á Sauðárkróki, d. 27.7.1947. Systkin: Anna Halla lögfræðingur, f. 19.4. 1946. Maki: Kristín Halldórsdóttir stjórnmálakona, f. 20.10. 1939. Börn: Kristján jarðfræðingur, f. 27.3. 1964, Pálmi fréttamaður og sagnfræðingur, f. 15.5. 1968, Pétur kerfisfræðingur, f. 24.12. 1970, Halldóra flugmaður, f. 7.1. 1974. Menntun: Stúdentspróf frá MR 1959. BA-próf í sagnfræði frá HÍ 1966. Starfsferill: Blaðamaður og fréttastjóri á Tímanum 1961-1964. Fréttastjóri Vísis 1964-1966. Ritstjóri Vísis 1966-1975. Ritstjóri Dagblaðsins 1975-1981. Ritstjóri DV 1981-2001. Ritstjóri Fréttablaðsins 2002. Útgáfustjóri Eiðfaxa ehf. 2003-2005. Leiðarahöfundur DV 2003-2005. Ritstjóri DV 2005-2006. Stundakennari í blaðamennsku við símennt Háskólans í Reykjavík 2006-2008. Eftirlaunamaður og bloggari 2008-. Yfir 10.000 greinar Jónasar eru aðgengilegar á www.jonas.is. Önnur störf: Fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands, Íslandsnefndar International Press Institute, Rotaryklúbbs Seltjarnarness, skólanefndar Seltjarnarness, fræðsluráðs Reykjanesumdæmis, Blaðaprents hf., M-klúbbsins, fræðslunefndar Fáks og ferðanefndar Fáks. Ritstörf: Líf í borg, 1973. Kóngsins Kaupmannahöfn, 1981, 2. útg. 1989. Heimsborgin London, 1983, 2. útg. 1988. Ævintýralega Amsterdam, 1984, 2. útg. 1992. París, heimsins höfuðprýði, 1985. New York, nafli alheimsins, 1988. Heiðajarlar, 1989. Ættfeður, 1990. Madrid og menningarborgir Spánar, 1991. Heiðurshross, 1991. Aldna og unga Róm, 1992. Merakóngar, 1992. Hagahrókar, 1993. Heiðamæður I, 1994. Feneyjar engu líkar, 1996. Fákalönd, 1996. Hestaþing I, 1997. Hestaþing II, 1998. Víkingar I, 1999. Landsmót 2000, 2000. Víkingar II, 2001, Hrossanöfn, 2002. Forustugreinar í dagblöðum allar götur frá 1973, allar endurbirtar á veraldarvefnum (jonas.is). Veitingarýni í blöðum og tímaritum allar götur frá 1980, allar endurbirtar á veraldarvefnum (jonas.is). Gagnabanki um hrossarækt á veraldarvefnum (hestur.is). Erlend ferðarýni á veraldarvefnum (jonas.is). Safn íslenzkra reiðleiða, gamalla og nýrra, á vefnum (jonas.is). |