Jonas Kristjansson http://www.jonas.is/ Jonas Kristjansson Teymdir á asnaeyrunum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16297 Eignahrun lífeyrissjóða stafaði ekki af skorti á fjárfestingar-tækifærum eins og verkalýðsrekendur fullyrða. Síðustu misserin fyrir hrun fjárfestu sjóðirnir óábyrgt. Stjórnendur þeirra létu bófaflokka á borð við Exista og Baug teyma sig á asnaeyrunum. Fylgdust ekki með markaðinum og flutu sofandi að feigðarósi. Trúðu í blindni á gargandi snilld bófa, sem féflettu sjóðina. Létu þá draga sig í boðsferðir um heiminn til að tosa frá sér féð. Hagsýnar húsmæður hefðu aldrei fjárfest í slíku rugli. Atvinnu- og verkalýðsrekendur sviku þjóðina rétt eins og útrásarbófarnir, Flokkurinn og forseti Íslands. 06 Feb 2012 13:18:16 GMT Atli og Ólafur Þór biluðu http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16296 Þegar skýrsla sannleiksnefndar Alþingi var birt almenningi, töldu margir, að uppgjörið við hrunið mundi takast. Framhaldið glutraðist hins vegar niður. Mestu máli skiptir, að þingmannanefndin, sem tók við málinu, var ekki starfi sínu vaxin. Mest er það Atla Gíslasyni nefndarformanni að kenna. Hefði átt að halda opna og gegnsæja fundi eins og hliðstæðar nefndir í Bandaríkjunum og Evrópu. En hún var leyndó og allt fór síðan á hvolf. Hitt bölið var, að sérstakur saksóknari stóð ekki við loforð um skjóta afgreiðslu hrunmála. Nú er komið langt yfir alla framlengda fresti og alls ekki bólar þaðan á neinu. 06 Feb 2012 05:06:08 GMT Skautað hjá spillingu http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16295 Skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóðina sökkar. Er samin að frumkvæði lífeyrissjóðanna sjálfra og höll undir þá. Skautar framhjá spillingu þeirra. Til dæmis boðsferðum til útlanda og eftirfylgjandi aðild sjóðanna að grófum fjárglæfrum. Þannig spillingar er getið í skýrslu sannleiksnefndar Alþingis, svo að hún hefur tæpast farið framhjá sérpöntuðum skýrsluhöfundum sjóðanna. Þunnur hvítþvottur nefndarformannsins í Kastljósi gekk út á, að hugsanlega hafi sumar boðsferðir verið frambærilegar kynnisferðir. Enda sagði enginn lífeyrisbófi af sér í kjölfar skýrslunnar. Hvorki stjórar né stjórnarmenn. 05 Feb 2012 18:21:08 GMT Ögmundur verst ekki http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16294 Ögmundur Jónasson verst ekki í <a href=http://www.ogmundur.is/news.asp?ID=672&type=one&news_ID=6166>blogginu</a>. Segist bara hafa verið venjulegur stjórnarmaður lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna hrunárið 2008. Eins og það fríi af ábyrgð þann, sem var stjórnarformaður 2007. Segist alltaf hafa mælt með lægri ávöxtun lífeyrissjóða. En þeir hafi verið skyldaðir með lögum til að leita hæstu vaxta. Eins og það sé vörn fyrir ruglinu á sjóði opinberra. Segir rangt, að sjóðurinn hafi tapað mest allra, því að hann hafi ekki tapað hlutfallslega mest allra sjóða. Breytir því alls ekki, að hann tapaði mest, flestum krónum. Bull Ögmundar staðfestir, að hann er hrunverji eins og Geir. 05 Feb 2012 14:16:30 GMT Lóðrétt hugsandi fólk http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16293 Fagritið Psychological Science segir frá <a href=http://pss.sagepub.com/content/early/2012/01/04/0956797611421206.abstract >rannsókn</a>, sem sýnir íhaldsmenn að meðaltali heimskari en annað fólk. Hér kýs slíkt fólk Sjálfstæðisflokkinn. Þótt hann reki harða hagsmunagæzlu kvótagreifa og annarra eigenda ríkisins. Rannsóknin snýst hins vegar ekki um, að kjósendur Sjálfstæðisflokksins hugsa lóðrétt, en ekki lárétt eins og fólk gerir flest. Venjulegt fólk lítur á flesta sem jafningja. En lóðrétt hugsandi fólk lítur á fólk sem yfirmenn og undirmenn. Þannig varð mafían til á Suður-Ítalíu. Sunnan Rómar hugsa menn lóðrétt, undirgefið, kjósa Flokkinn eina, en norðan Rómar hugsa menn lárétt. 05 Feb 2012 06:19:00 GMT Fljúga fleiri lengra? http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16291 Sævar Gunnarsson segir, að Gæzlan þurfi fjórar þyrlur. Skýring hans er sú, að tvær þyrlur dugi ekki í 20 mílna flug frá ströndinni. Hvernig fjórar þyrlur geta flogið lengra en tvær þyrlur er skilningi mínum ofviða. Enda er Sævar einn af þessum gamalkunnu frekjudöllum verkalýðsrekenda, sem kann sér ekki hóf í málflutningi. Minnir á þá, sem vilja ekki bara, að ríkið fjarlægi brjóstastækkanir einkaframtaksins. Heimta þar á ofan nýjar stækkanir á okkar kostnað. Frekja og yfirgangur gefa tóninn í samfélaginu heilum þremur árum eftir hrun: "Ég um mig frá mér til mín" gætu verið einkunnarorð þjóðarinnar. 04 Feb 2012 18:21:02 GMT Dapurt veganesti http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16290 Sjálfstæðisflokkurinn verður auðvelt skotmark í næstu kosningabaráttu. Lýtur hugmyndafræðilegri forustu dýrasta hrunverjans á Morgunblaðinu. Og herstjórn annars hrunverja, sem pikkfastur er í Vafningi á kostnað almennings. Hálfur þingflokkurinn er markaður græðgi hrunverja, allt frá kúlulánadrottningunni yfir í hrunbankastjórann. Flokkurinn neitar að biðjast afsökunar á aðild sinni, stefnu sinnar og ráðamanna flokksins að hruninu. Talar í þess stað um Svokallað hrun. Á þingi berst öfgaflokkurinn heiftarlega fyrir sérhagsmunum kvótagreifa. Þetta verður dapurt veganesti, þegar kosningabaráttan byrjar. 04 Feb 2012 12:17:46 GMT Ögmundur hrunverji http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16289 Núna skil ég, hvers vegna Ögmundur Jónasson ráðherra vill friða Geir Haarde. Þeir eru báðir hrunverjar. Ögmundur var stjórnarformaður lífeyrissjóðsins, sem mestu tapaði í hruninu, yfir hundrað milljörðum. Því er ekki skrítið, að Ögmundur telji yfirstétt hrunsins enga ábyrgð bera. Hún hafi bara fengið hrunið í hausinn, án þess að hafa neitt til saka unnið. Ögmundur hafi bara óvart tapað hundrað milljörðum á kostnað þjóðarinnar, rétt eins og Geir H. Haarde tapaði nokkur hundruð milljörðum þjóðarinnar í aðdraganda hrunsins. Þeir eru fóstbræður í skuld sinni við okkur, sannir hrunverjar báðir tveir. 04 Feb 2012 05:24:22 GMT Sjóðstjórum sé fleygt út http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16288 Skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóðina segir mér, að forstjórar þeirra og stjórnarmenn létu sem snarbilaðir og augafullir árum saman. Töpuðu 479 milljörðum árin 2008-2010, meiru en sem nemur útgjöldum ríkisins þessi ár. Þetta voru peningar gamlingjana, sem þeir stálu og brenndu til agna. Allir eiga bófarnir að fara í fangelsi, en enginn hefur samt gert það enn. Þjóðin þarf að brjótast inn á kontórana, kasta þessum snarbiluðu og augafullu bófum út á stétt. Þeir hafa rústað lífeyriskerfi þjóðarinnar og þeim ber að sæta ábyrgð. Ef ónýta dómskerfið ræður ekki við þá, getur dómstóll götunnar það. 03 Feb 2012 18:20:07 GMT Glæframenn borgi glæfra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16287 Rökrétt afgreiðsla ábyrgða á rekstraröryggi banka er, að þeir myndi með sér ábyrgðarsjóð. Leggi í hann hluta af veltu sinni. Eftir því sem sjóðurinn stækkar eykst geta hans til að fjármagna nýtt óðagot og bankahrun. Ekkert náttúrulögmál segir, að ríkið eigi neitt að koma þar að máli. Af hverju ættu skattgreiðendur að borga tap af bönkum, en bankaeigendur að hirða gróða? Við höfum fengið upp í kok af slíkri hagfræði. Fjárglæframenn eiga sjálfir að borga sína glæfra. Ríkisrekstur á tapi er bara enn ein birtingarmynd þess pilsfalda-kapítalisma, sem peningavaldið hefur löngum troðið upp á þjóðina. 03 Feb 2012 15:07:45 GMT Íslenzkur Tobin-skattur http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16286 Ríkið á bara tvo kosti, ef það vill losa landið við gjaldeyrishöft. Annar er að leggja niður krónuna og þá tekur evran við. Sem hefur staðið sig vel í evrópskum ólgusjó undanfarin misseri. Hinn er að taka upp svonefndan Tobin-skatt á gjaldeyrisviðskipti. Hann dregur mjög úr gróða af gjaldeyrisbraski, stöðutöku og spákaupmennsku. Leiðir til traustari utanríkisviðskipta og jafnar sveiflur á gengi krónunnar. Meginland Evrópu er að sigla inn í Tobin-skatt til að ná betri tökum á braski bankabófa. Geir Zoëga hagfræðiprófessor mælir með þessum skatti og fjármálaráðherra hefur tekið undir tillögu hans. 03 Feb 2012 05:16:08 GMT Formaður spyrji ráðherra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16285 Steingrímur Sigfússon flokksformaður skrifar með fleiri norrænum formönnum grein í Fréttablaðið. Efni hennar snýst um, að ríki og skattgreiðendur eigi ekki að borga hrun banka. Gaman væri að vita, hvort flokksformaðurinn hafi borið þetta undir Steingrím Sigfússon fjármálaráðherra. Þá hefði hann fengið upplýsingar um, hvað Ísland hafi gert í þriggja ára embættistíð hans til að hindra þetta. Hefur hann tryggt, að næsta hrun lendi ekki á okkur eins og fyrra hrunið? Honum hefði verið í lófa lagið að hafna ríkisábyrgð á bönkum. Sú ákvörðun hefði án efa haft pólitískan stuðning og stuðning almennings. 02 Feb 2012 18:06:59 GMT Hatur á hestum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16284 Bezti flokkurinn og Samfylkingin hafa slegið heimsmet í hækkun skatts, 750%. Aldrei áður í sögu mannkyns hefur einn skattur verið hækkaður um 750%. Þeir Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson duttu á höfuðið. Hækkuðu fasteignagjald hesthúsa í Reykjavík úr 0,22% af fasteignamati í 1,65% af fasteignamati. Hesthús, sem áður bar 56.000 króna fasteignagjald, ber framvegis 426.000 króna fasteignagjald. Á hverju ári! Fyrir utan 130.000 króna holræsagjald. Á hverju ári! Hesthús bera hér eftir margfalt hærri gjöld en fjós og fjárhús. Og bera raunar margfalt hærri gjöld en íbúðir mannfólksins. Hatur á hestum? 02 Feb 2012 12:01:54 GMT Ísland er ónýtt http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16283 Eftir vetur endalausra frétta af vangetu íslenzkrar stjórnsýslu spyr Margrét Tryggvadóttir þingmaður í bloggi sínu: <a href=http://blog.eyjan.is/margrett/2012/02/01/75-bilun/>Er Ísland ónýtt?</a> Nýjasta dæmið er yfirgengilegt klúður lögreglunnar í viðbrögðum við sprengju á Hverfisgötu. Og klúður Reykjavíkurborgar í rekstri öryggismyndavéla, af sama tilefni. Í fréttum voru áður Matvælastofnun, embætti Landlæknis, Útlendingastofnun, Persónuvernd, Fjármálaeftirlit, Umhverfisstofnun og Úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Ég er sammála Margréti. Alls konar stofnanir eru settar á fót til málamynda til að koma óvinnufærum kvígildum stjórnmálaflokkanna á kaup. 02 Feb 2012 05:28:48 GMT Villurnar vaða uppi http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16282 Ýmsar villur leika lausum hala í umræðu um fjármál. Hvatt er til hagvaxtar í formi aukinna viðskipta, en ekki aukinnar framleiðslu. Ímyndaður hagvöxtur. Talað er um, að verðbólgan án fasteignabólgu eftir hrunið sé fordæmalaus. En hún er það ekki. Menn hafa áður og ítrekað veðjað á að skulda í steypu og ítrekað farið illa út úr því. Ekki bara eftir hrun. Ríkið getur ekki ábyrgzt tap af slíku frekar en öðru braski. Krafan um leiðréttingu fasteignalána er komin út í öfgar. Talað er um að prenta seðla til að fjármagna sukk. En það leiðir til enn meiri verðbólgu. Sölumenn hagfræðilegrar snákaolíu vaða uppi. 01 Feb 2012 18:11:32 GMT Galdrar duga ekki http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16281 Losaðu þig við hugmyndir um að láta ofátið hverfa með göldrum. Nánast allir matarkúrar byggjast á göldrum, einföldum slagorðum um ævintýralegan árangur á stuttum tíma. Höfundar matarkúra eru sölumenn snákaolíu, arftakar þeirra, sem fyrr á öldum fóru milli markaðstorga með glös í pússi sínu. Enginn sítrónukúr eða steinaldarkúr mun flytja þig yfir til fyrirheitna landsins. Að vísu borgar sig að taka út örfáar matartegundir, en að öðru leyti felst verkefni ofætunnar í að breyta persónu sinni. Að gera sig að persónu, sem veit, hvenær hún má borða og hvenær hún á að stöðva átið hverju sinni. 01 Feb 2012 11:58:55 GMT Blair-istar í þingliði http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16280 Mér finnst óþægilegt, að sumir þingmenn Samfylkingarinnar hafa lítinn áhuga á brýnustu umhverfismálum. Standa í vegi friðunar á ýmsum náttúruperlum, sem hagsmunaaðilar vilja virkja. Oftast eru þetta sömu þingmenn og þeir, sem sjá eftir samstarfi flokksins við Sjálfstæðisflokkinn í hrunstjórninni. Kalla má þetta frjálshyggjuliðið í Samfylkingunni. Leifarnar af Blair-ismanum, sem hélt innreið sína í flokkinn með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Þingmenn þessir hafa ekki lært af reynslu hrunsins. Vissulega ber þó að þakka það, sem vel er gert. Við losnuðum við Árna Pál Árnason úr sessi bankaráðherra. 01 Feb 2012 05:23:01 GMT Bjarni í fjárglæfrum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16279 Ekki hef ég hugmynd um, hvort formaður Sjálfstæðisflokksins framdi lögbrot í braskinu. Hitt veit ég, að hann er siðferðilega með allt niðri um sig. Kom eign sinni út úr Glitni, þegar útvaldir fengu að vita, hvert stefndi. Var þannig dæmigerður hrunverji. Æfingar hans í stuttbuxna-kapítalisma í Sjóvá lentu síðan á herðum skattgreiðenda upp á nokkra milljarða króna. Bótasjóður tjónþola var hreinsaður upp í þessu braski hans. Fyrir Flokkinn er dæmigert, að hann skuli geta notað siðvilltan og gráðugan fjárglæframann sem formann. Það kemur því ekkert við, hvort hann hefur brotið hriplek landslög eða ekki. 31 Jan 2012 18:18:29 GMT Fjöldamorð eða þjóðarmorð http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16278 Deilurnar um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum snúast um keisarans skegg. Enginn vafi er á, að Tyrkir frömdu fjöldamorð á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Spurningin er bara, hvenær fjöldamorð eru skilgreind sem þjóðarmorð. Tyrkir ættu að skammast sín á illverkum feðranna og biðjast afsökunar fremur en að berja hausnum við steininn. Hins vegar er líka fáránlegt, að vestræn ríki ákveði með lögum að stjórna, hvernig sé talað eða skrifað um þessa atburði. Algerlega er fáránlegt að reyna að banna rangar skoðanir, svo sem á morðum á gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni. Og að fangelsa menn fyrir að hafa þær. 31 Jan 2012 15:12:52 GMT Sukkarar verði reknir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16277 Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður spyr Steingrím J. Sigfússon um viðurlög við ítrekuðum brotum forstöðumanna á fjárlögum. Sumir yfirmenn opinberra stofnana fara ár eftir ár yfir á fjárlögum, án þess að hróflað sé við þeim. Sigmundur Ernir segir þetta ólíðandi og ég tek undir það. Þeir eiga raunar sjálfkrafa að taka pokann sinn. Fjárlög eiga að vera heilög. Ef þau eru það ekki, fer allt úr böndum. Raunar ætti líka að vera bannað að hafa halla á fjárlögum, því slíkt stuðlar að fjármálakreppu. Við sjáum af misjafnri stöðu ríkja Evrópu, að nauðsynlegt er að hafa strangan ramma á ríkisfjármálunum. 31 Jan 2012 05:13:54 GMT Brengluð kjörþyngd http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16276 Hugmyndir fólks um kjörþyngd hafa brenglazt, einkum vegna áhrifa tízkuhúsa. Um langt árabil hefur aukizt þrýstingur á, að fólk eigi að vera þvengmjótt. Þetta er orðið að áráttu hjá mörgum, einkum ungum konum. Áráttan er studd framleiðendum alls konar vöru og þjónustu, sem sögð er hjálpa þér við að grennast. Við þurfum að breyta þessu brenglaða fegurðarmati. Einkum þurfum við að víkka hugtak kjörþyngdar. Þurfum að auka áherzlu á það, sem kallað er offita, en taka léttar á því, sem kallast ofþyngd. Ágætt er að vera fimm til sjö kílóum yfir neðri mörkum ofþyngdar eins og hún hefur verið skilgreind. 30 Jan 2012 18:15:10 GMT Gagnslausar kannanir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16275 Við þurfum enga skoðanakönnun til að segja okkur, hvað meirihlutanum finnst um Evrópusambandið. Meirihlutinn vill halda áfram viðræðum og ljúka þeim. Meirihlutinn vill síðan þjóðaratkvæði um útkomuna. Meirihlutinn vill fella aðild í þessu þjóðaratkvæði. Þetta þrennt vitum við öll, þótt öfgamenn til beggja átta birti pantaðar tölur frá Capacent og MMR. Pantaðar kannanir um einstaka þætti málsins eru lítils virði, oft með leiðandi texta viðkomandi öfgahóps. Taktu ekki mark á neinum slíkum könnunum, hvort sem þér geðjast fremur að öðrum öfgahópnum heldur en hinum. Heilbrigð skynsemi er farsælli. 30 Jan 2012 12:24:50 GMT Engin sameiningartákn http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16274 Lítið er um sameiningartákn í þjóðfélaginu. Enginn getur lengur predikað yfir þjóðinni. Sjálfur forsetinn er mesta sundrungaraflið. Menn elska hann eða hata. Hann er engin Vigdís. Það fær þjóðin út úr því að setja pólitíkus á friðarstól. Fyrrum seðlabankastjóri var langversti friðarspillir landsins. Hann var enginn Jóhannes Nordal. Eftirmaður hans tuðar í prívat launastríði og hefur ekkert respekt. Menn hlusta ekki á hann. Forsætisráðherra tuðar af og til, en áminnir þjóðina aldrei. Minnir á ræðumann á útifundi í rigningu á kreppuárunum. Sjálfur biskupinn er núll og nix, aðhlátursefni úti um allt. 30 Jan 2012 05:04:33 GMT Niðurgreiddur lífeyrir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16273 Marinó G. Njálsson birtir athyglisvert <a href=http://marinogn.blog.is/blog/marinogn/entry/1219621/>blogg</a> um, að þegar sé hafin tilfærsla fjármagns í lífeyrissjóðum frá ungum til gamalla. Uppsafnaður greiðslur nægi ekki fyrir útgreiðslum. Gamlingjarnir hafi árum saman fengið niðurgreiddan lífeyri. Og það séu hinir ungu, sem taki á sig skerðinguna. Þetta þarf að fá kannað betur. Þá er ég ekki að tala um Hagfræðistofnun háskólans eða aðra stofnun, sem enginn tekur mark á. Fremur einhverja óháða fræðinga, ef þeir fyrirfinnast. Sé þetta rétt hjá Marinó, hafa verkalýðsrekendur þagað yfir þessu eins og mannsmorði. Og auðvitað þarf þá að laga misréttið sem fyrst. 29 Jan 2012 18:23:02 GMT Sjónhverfingar kosta http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16272 Hagsmunasamtök heimilanna neita alveg að ræða fjármögnun tillagna um meiri afslátt af íbúðaskuldum. Þegar talið berst að þessu, fara talsmenn þeirra að tala um annað. Skárra væri þó að taka undir hugmynd um að láta Seðlabankann prenta fleiri seðla. Það er að minnsta kosti hugmynd að senda fólki seðla í pósti, þótt það sé ekki góð hugmynd. Einhver verður að borga brúsann fyrir rest. Fólk vill tæpast láta Landspítalann borga. Og hvorki skattgreiðendur né lífeyrisþegar vilja borga. Annað hvort yrði þó ríkið að spara meira eða hækka skatta; og lífeyrir mundi lækka. Allt kostar, líka sjónhverfingarnar. 29 Jan 2012 13:03:24 GMT Aldrei má redda bönkum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16271 Gjaldþrot Grikklands verður ekki hindrað, þegar Þjóðverjar eru farnir að heimta, að fjárlagagerð þess heyri undir Evrópusambandið. Grikkir geta ekki samþykkt slíkt. Tillagan endurspeglar uppgjöf Evrópu. Horfir á, að gríska kerfið lyftir ekki litla fingri til að efna loforð um aðhald í ríkisrekstri. Grikkland á að fá sitt gjaldþrot í friði. Ekki er í verkahring Þýzkalands eða Evrópusambandsins að gæta hagsmuna glannafenginna banka. Ég sé ekki, hvað það þurfi að koma Evrópu eða evru við, að Grikkland rúlli. Evrópu þarf að læra meira af þessari reynslu: Að hlaupa aldrei undir bagga með bönkum. 29 Jan 2012 06:04:26 GMT Útvarpsstjóri í stuði http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16269 Páll Magnússon lætur Davíð Oddsson heyra það. Og þar er hvert orð satt. Hinn goðumlíki leiðtogi hrunsins er að skrifa sig blóðlausan frá ábyrgð á því, sem nú heitir Svokallað hrun. Páll kallar þetta sjálfsréttlætingar-þerapíu fyrrum seðlabankastjóra, sem áður gaf fjárglæframönnum Landsbankann og þar á ofan Búnaðarbankann. Sá, sem síðan leyfði bófum að stíga Hrunadansinn og tæma Seðlabankann, stundar nú svartagallsraus að sögn Páls. Sakar Davíð um mannfyrirlitningu, forheimskun og heift. Er þar hvergi ofsagt. Ritstjóri Morgunblaðsins sé í senn að tapa lestri þess, sölu þess og trausti þess. 28 Jan 2012 18:20:08 GMT Hola í vegg http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16268 Notalegustu kaffihúsin eru þau, sem á ensku mundu kallast Hola í vegg. Þar komast kannski átta manns inn í senn, ef þeir sætta sig við að fá ekki sæti. Kaffifélagið á Skólavörðustíg er dæmi um holu í vegg. Þar eru fjórir kollar og þar er hægt að kíkja í blöðin. Haiti var lengi hola í vegg í Tryggvagötu, notalegur staður. Svo fluttist kaffihúsið í verbúðirnar við Geirsgötu í margfalt stærra húsnæði. Jafnframt fór það að bjóða hádegissúpu og jafnvel mat. Við það dreifðist áherzlan út og suður. Haiti er ekki lengur hola í vegg, heldur hefðbundnari veitingastofa með dálítið ringluðum persónuleika. 28 Jan 2012 12:33:05 GMT Klikkaðir frambjóðendur http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16266 Annar hver forsetaframbjóðandi repúblikana er svo klikkaður, að hann væri á geðdeild á Norðurlöndum, jafnvel á Íslandi. Sumir jafnvel á réttargeðdeild. Hafa má það til marks um afvegaleidda bandaríska þjóð, að Newt Gingrich er orðinn vinsælasti frambjóðandinn. Fór upp fyrir Mitt Romney vegna grunsemda almennings um, að Romney kynni frönsku. Slíkir eru þar kallaðir "osta-étandi uppgjafa-apar". Það er dauðasök þar vestra. Romney náði sér niður á Gingrich með því að kenna honum um bann í Kína við fleiri en einu barni á fjölskyldu. Klikkið í kosningabaráttunni slær allt út, sem Vigdís Hauksdóttir segir hér. 28 Jan 2012 06:47:27 GMT Tilvistarkreppa karla http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16265 Erfitt er að vera ungur karlmaður í dag. Siðferðilegt leiðarljós hárlausrar karlmennsku nútímans sætir einelti fésbókar og bloggheima. Nærri fjórðungur tegundarinnar getur ekki lesið sér til gagns. Háskólar fyllast af hálærðum blómarósum. Fyrir strákunum liggur að leggjast á atvinnuleysisbætur og láta setja á sig síðgotneskt tattú. Varla munu þeir hafa efni á að borga fyrstu útborgun í Harley Davidson. Nútíma þjóðfélag er orðið of flókið fyrir fyrrum ofurtegund, sem senn lendir í útrýmingarhættu. Loks reiðir Sóley Tómasdóttir svipuna hátt til höggs, þegar talsmenn úreltrar tegundar gráta tilvist sína. 27 Jan 2012 18:16:06 GMT Metsölubækur næstu jóla http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16264 Þverbrestur varð í óopinberri bókaútgáfu Sjálfstæðisflokksins, þegar sjálfir gulldrengirnir brugðust á jólavertíðinni. Hannes Hólmsteinn seldist ekki og fastur sat í hillum bókabúða sjálfur gúrú íslenzkra karlmannasiða í umgengni við konur. Gilzenegger er útbrunnin vara. Þá brá bókaútgáfan Öld efh á það ráð að kalla til helztu sérfræðinga hrunsins. Milljónir í bókaforlagið lögðu Baldur Guðlaugsson hinn víðfrægi ráðuneytisstjóri, Kjartan Gunnarsson mestur bankaráðsmanna og Ármann Þorvaldsson fyrrum ofurstjóri Singer & Friedlander. Á næstu vertíð gefa þeir líklega allir út bækurnar: "Ég varð fyrir einelti". 27 Jan 2012 12:02:57 GMT Yfirhilmingarstofnun http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16263 Heldurðu, að Matvælastofnun geri athugasemdir við fölsun skráargatsmerkisins á vörum Mjólkursamsölunnar? Kannski eftir tvö ár og þá aðeins ef forstjóri Matvælastofnunar hefur á meðan verið geymdur í búri á Lækjartorgi með þessa einu undankomuleið. Heldurðu, að þú fáir að vita um framgang samskipta út af misnotkun þessa norræna merkis? Aldeilis ekki, það er stefna stofnunarinnar, að matvæli komi almenningi alls ekkert við. Heldurðu, að Matvælastofnun geri eitthvað? Biddu fyrir þér, eftir tvö ár sendir hún samsölunni tuðbréf, sem samsalan mun ekkert mark taka á. Matvælastofnun er yfirhilmingarstofnun. 27 Jan 2012 05:08:46 GMT Þá verður fjör á Fróni http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16262 Þótt bankarnir skuldi enn rúma fimmtíu milljarða í uppgjöri við almenning, hjálpar það ekki skuldurum Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóðanna. Sem keyptu ekki kröfur sínar fyrir slikk úr gömlu bönkunum. Að baki Íbúðalánasjóðs er ríkið. Og bak við ríkið eru annað hvort niðurskurður, svosem á Landsspítala, eða skattgreiðendur, sem eru lítt kátir. Að baki lífeyrissjóðanna alræmdu eru gamlingjar, sem eru sízt kátari. Spurning er, hvort Hagsmunasamtökum 400 fermetra heimila takist að fá hjálp forseta Íslands til að hafa peningana af Landsspítala, skattgreiðendum og gamlingjum. Þá verður sko fjör á Fróni. 26 Jan 2012 16:57:32 GMT Refsilaus fjöldamorðingi http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16261 Fjöldamorðinginn Frank Wuterich mun ekki sæta fangavist fyrir að hafa myrt 24 óbreytta borgara í Írak. Hann fór fyrir flokki bandarískra hermanna, sem létu morðæði renna á sig. Sambærilegt við My Lai stríðsglæpinn í Víetnam. Bandarískur herdómstóll fékk þá niðurstöðu, að lækka bæri Wuterich í tign, en hann fengi þó að halda óbreyttum launum. Ítrekað hefur komið fram, að stríðsglæpir Bandaríkjahers eru orðnir refsilausir. Til dæmis hefur enginn verið dæmdur fyrir pyndingar í Abu Ghraib fangelsinu. Refsileysi Wuterich er skelfilegur áfellisdómur yfir bandaríska hernum og Bandaríkjunum í heild. 26 Jan 2012 12:10:28 GMT Falsaðar undirskrifir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16260 Undirskriftasöfnun Ólafs Ragnars forseta fullnægir engum kröfum um slíkar safnanir. Menn geta setið daga og nætur við að skrá inn Mikka mús, Ara fróða og Ívan grimma á fölsuðum kennitölum. Menn geta skráð inn alla þjóðskrána. Auðvelt væri samt hægt að gera þetta vel. Þá er skráð nafn og kennitala. Hún er yfirfarin og metin rétt samkvæmt staðli. Athugaður er kosningaaldur og hvort kennitalan er til í þjóðskrá. Og hvort kennitalan var áður skráð í sömu könnun. Sendur tölvupóstur til að fá undirskriftina staðfesta. Ólafur Ragnar gætir þess að gera þetta rangt. Til að fá út töluna, sem hann vill. 26 Jan 2012 05:15:28 GMT Óbærilegir ráðherrar http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16259 Þegar í harðbakkann slær, vefja bandarískir stjórnmálabófar um sig fánanum og kyrja þjóðsönginn. Svo segja mér menn þar vestra. Hafi menn eitthvað að fela, flýja þeir í þjóðrembu. Gömul saga lýðskrumara um allan heim, þar á meðal hér. Jón Bjarnason var staðinn að óbærilegri stjórnsýslu sem ráðherra. Varði sig og ver sig enn með því, að Evrópusambandið ofsækti sig. Ögmundur Jónasson er á sömu vegferð í óbærilegri stjórnsýslu. Hrunið er ekki lengur Flokknum að kenna, heldur Evrópusambandinu. Kontóristar ánetjast því, segir hann, tína upp glerperlur þess og drekka eldvatn þess. Segir lýðskrumarinn. 25 Jan 2012 18:08:29 GMT Bankarnir hafa svigrúm http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16258 Þótt ég hafi stundum agnúast út í Marinó G. Njálsson, trúi ég honum betur en alræmdri Hagfræðistofnun Háskólans. Reikningar Marinós sýna, að bankarnir eiga enn eftir að nota 52-53 milljarða af svigrúmi til að létta skuldabyrði almennings. Svigrúmið fengu þeir, þegar þeir keyptu skuldirnar með afslætti út úr þrotabúi gömlu bankanna. Hafi þeir notað svigrúmið til að gefa vinum sínum meðal útrásarbófa og kvótabófa stórfellda afslætti, er það þeirra mál, en ekki skattgreiðenda. Gera þarf kröfu um, að bankarnir verði neyddir til að fullnýta svigrúmið, sem þeir fengu í uppgjöri sínu við gömlu bankana. 25 Jan 2012 12:19:16 GMT Öfugmæli Ögmundar http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16257 Samkvæmt kenningu Ögmundar Jónassonar eru réttarhöld Landsdóms yfir Geir H. Haarde tilraun til að hvítþvo stjórnmálin! Hvers vegna vill flokkur Geirs þá draga réttarhöldin til baka? Kenning Ögmundar er þvættingur eins og annað, sem hann hefur sagt undanfarið. Um daginn sagði hann of dýrt að reka mál til að komast að, hver sagði hvað við hvern. En það er einmitt kjarni málsins, sá sem fólk á að fá að vita. Ögmundur segir uppgjörið við hrunið hafa þegar farið fram með núverandi ríkisstjórn. Ég sé samt gömlu Samfylkinguna enn við völd og litla stefnubreytingu frá fyrri stjórn. Ótrúleg öfugmæli Ögmundar. 25 Jan 2012 04:55:50 GMT Falsað merki skráargats http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16256 Án þess að hafa til þess heimild er Mjólkursamsalan farin að stimpla vörur frá sér með norrænu merki skráargatsins. Það á að einkenna mat, sem er betri og hollari en almennt gerist í þeim vöruflokki. Enginn aðili hefur staðfest, að svo sé. Dregizt hefur að koma upp slíku eftirliti hér, meðal annars vegna innlendra framleiðenda, sem vilja útvatna reglurnar. Því er stimpill á fæðu Mjólkursamsölunnar falsaður. Felur í sér eindreginn brotavilja fyrirtækis, sem reynir að rugla neytendur í ríminu. Í samræmi við almenna fyrirlitningu innlendra framleiðenda á neytendum, sem ítrekað hefur komið fram nýverið. 24 Jan 2012 18:01:48 GMT Verjum leifar réttlætis http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16255 Guðríður Haraldsdóttir viðlagaritstjóri sætir ofsóknum héraðsdómara. Þarf að greiða lögfræðingum tvær milljónir króna vegna frásagnar þriðja aðila í fjölmiðli, sem hún hefur gripið í að stýra. Það er meira en fólk þarf að borga fyrir að nauðga börnum. Siðlausir héraðsdómarar í Reykjavík eru að venju úti að aka. Útgefandi tímarita Birtings tekur þátt í þögguninni með því að neita að borga. Nýmæli í útgáfu hér á landi. Við búum í samfélagi, þar sem yfirstéttin magnar siðleysi. Hafin er söfnun til stuðnings Guðríði. Söfnunarreikningurinn er 0186-05-00090 og kennitalan er 120858-3199. 24 Jan 2012 12:40:57 GMT Óskiljanleg froða http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16253 Mér sýnist kröfur vera minni til Samfylkingarinnar en til Vinstri grænna. Fólk veit, að ráðherrar Samfylkingarinnar tóku þátt í ákvörðunum og skorti á þeim fyrir hrunið. Veit, að þingmenn flokksins eiga erfitt með að velta við steinum af ótta við geta komið flokksbræðrum illa. Skilur, að sumir þingmenn flokksins óttist vitnaleiðslur. Þetta sama fólk skilur hins vegar alls ekki þvermóðsku einstakra þingmanna og jafnvel eins ráðherra Vinstri grænna. Þeir reyna að bregða fæti fyrir vitnaleiðslur í pólitískum þætti hrunsins. Og reyna að verja það með óskiljanlegri froðu útskýringa að hætti Ögmundar Jónassonar. 24 Jan 2012 07:48:08 GMT Hjólreiðar í Amsterdam http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16252 Í Amsterdam hjóla allir. En þar er enginn með hjálm. Alls enginn. Þar hjólar fólk með spennta regnhlíf í annarri hendi og talar í farsíma með hinni. Þar hjólar fólk með hjálmlaus smábörn á stýri. Á stýrinu, eins og í gamla daga. Allar þær reglur um hjólreiðar, sem við þekkjum á Íslandi, gilda alls ekki í Amsterdam. Samt verða engin hjólreiðaslys í Amsterdam. Færri en í Reykjavík. Allt gatnakerfið snýst nefnilega um reiðhjól. Sérstakar brautir eru fyrir reiðhjól. Og bílar eru alls ekki leyfðir í þrengstu götunum. Reglurnar fyrir hjólreiðafólk hér á landi eru hins vegar sniðnar að kerfi almáttugra bíla. 23 Jan 2012 18:06:56 GMT Ögmundur skúrar ekki http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16251 Hitti varla nokkurn, sem ekki er reiður yfir getuleysi Alþingis við að gera upp pólitískan þátt hrunsins. Þeir vilja fá að vita nákvæmlega, á hvaða hátt pólitíkusar komu að ferlinu. Hver gerði hvað á hverjum degi og gerði ekki hvað á hverjum degi. Hver sagði hverjum hvað á hverjum degi og sagði ekki hvað við hvern á hverjum degi. Þetta er enn í þoku. Margir ætluðust til að henni yrði sópað burt í vitnaleiðslum. Ferlið skiptir fólk meiru en útkoma Landsdóms. Réttilega er Ögmundi Jónassyni mest kennt um svik Alþingis, enda var hann kosinn til að skúra. Útskýringar hans falla í mjög grýttan jarðveg. 23 Jan 2012 11:17:14 GMT Því minna því betra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16249 Feneyingar stigu það heillaskref í sumar að hefja gjaldheimtu af ferðafólki. Skatturinn er lagður á alla gistingu, þar á meðal á tjaldstæðum uppi á landi. Feneyjar hafa lengi verið ofsetnar ferðamönnum. Þeir eru fleiri en 60.000 á degi hverjum. Einnig er brýnt að takmarka umferð skemmtiferðaskipa, þótt það verði ekki gert að þessu sinni. Skatturinn fer í aðgerðir til að vernda þetta heimsins stærsta og merkasta safn, en megintilgangurinn er þó að fækka ferðamönnum. Feneyingar hafa fengið nóg af þeim. Úti í heimi er til siðað fólk, sem ekki fer eftir íslenzka spakmælinu: Því meira, því betra. 23 Jan 2012 05:08:18 GMT Ábyrgð flatskjá-fólksins http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16248 Þeir, sem keyptu flatskjái, ollu ekki hruninu. Þeir eru bara teknir sem dæmi um þá, sem skuldsettu sig um of fyrir hrun. Þegar ég segi þá bera ábyrgð, er ég að tala um ábyrgð á sjálfum sér, ekki á þjóðarhag. Ég kaupi ekki flatskjá meðan túban endist. Hef mín fjármál undir kontról fyrir og eftir hrun. Þeir, sem verst fóru út úr hruninu, eru fyrirvinnur á fertugs- og sextugsaldri. Vilja láta skattgreiðendur borga fyrir sig. Verða reiðir, þegar talað er um 400 fermetra íbúðir þeirra. Og segja, að með flatskjá-dæmi sé verið að kenna þeim um hrunið. Rangt, þeim er þar bara kennt um eigin vondu fjárhagsstöðu. 22 Jan 2012 18:18:21 GMT Heimska í Seðlabankanum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16247 Seðlabankinn þykist nota stýrivexti til að hemja innlenda verðbólgu. Samt hækka stýrivextir og vísitala, þegar uppskerubrestur hækkar erlent hráefni. Þegar olíuverð sveiflast upp á við. Þegar ríkið hækkar skatt á áfengi. Alls vegur slíkt þyngra en innlend verðbólga. Hví er þá Seðlabankinn að reyna að hemja innlenda verðbólgu með því að hækka stýrivexti? Svarið er einfalt: Seðlabankastjórinn er bara svona heimskur. Man aðeins páfagaukslærdóm úr háskóla, sem ekki er í sambandi við veruleikann. Fáránlegir stýrivextir og meðfylgjandi lánavísitala stafa ekki af verndun á verðgildi höfuðstóls lána. 22 Jan 2012 12:14:17 GMT Áhugalausir eða fáfróðir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16246 Nánast daglega les ég fréttir, þar sem íslenzkir blaðamenn láta undir höfuð leggjast að gata blöðrur. Pólitíkusar og hagsmunaaðilar fá færi á að blása upp blöðrur, sem kalla á spurningar. En til þess að spyrja, þarf að vita eitthvað. Ýmist eru þessir blaðamenn áhugalausir um fréttina, sem þeir eru að skrifa, eða fylgjast lítið með fréttum. Með þessum vinnubrögðum hafna blaðamenn hefðum stéttarinnar. Brýnasta verkefni þeirra á að vera að hrekja augljósar rangfærslur pólitíkusa og hagsmunaaðila. Annars gagnast fréttir þeirra ekki lesendum. Stuðla raunar bara að aukinni forheimskun þjóðarinnar. 22 Jan 2012 05:38:23 GMT Hagvöxtur í rugli http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16245 Svokallaður hagvöxtur er á Íslandi að einum þriðja falinn í eyðslu erlendis. Hafa má það til marks um tilgangsleysi mælikvarðans. Hann mælir raunar ekki hagvöxt, heldur vöxt viðskipta. Þannig mælist oft hagvöxtur í Bretlandi og Bandaríkjunum, þótt eingöngu sé um viðskipti að ræða. Meira mark er takandi á hagvexti í Þýzkalandi, þar sem hann felst í aukinni framleiðslu. Hér á landi er mælikvarðinn vitlausari en annars staðar, því að hann felst meira í innflutningi og ferðakostnaði erlendis. Því miður tönnlast hagfræðingar og blaðamenn á þessum vonda mælikvarða. Gefa okkur því ranga mynd af þjóðarhag. 21 Jan 2012 18:10:02 GMT Siðalög um banka http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16244 Bankar og sjóðir reyna til hins ítrasta að sniðganga hæstaréttardóma um ítrekuð lögbrot þeirra á viðskiptamönnum. Hafa hersveitir lagatækna til að skálda upp, að dómarnir hafi ekki fordæmisgildi. Núverandi bankastjórar bera ábyrgð á stefnunni, svo og aðrir yfirmenn, þar með deildarstjórar. Meðferð banka á almennum viðskiptavinum stingur í stúf við ástarsamband þeirra við ofurbófana, sem stálu milljörðum. Að mínu viti ættu lög að vera svo siðleg, að yfirmenn banka sættu varðhaldi og saksókn vegna mismununar og siðleysis. Síðan yrðu þeir samkvæmt þessum sömu siðalögum dæmdir í ævilangt fangelsi. 21 Jan 2012 13:00:14 GMT Siðferðisbrestur á þingi http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16243 Atkvæðagreiðslan á Alþingi í gær gefur vísbendingu um, að meirihluti sé á Alþingi fyrir að loka þætti pólitíkusa í hruninu. Engar vitnaleiðslur verði og því komi þáttur einstakra ráðamanna ekki í ljós. Ekki verði heldur birt gögn þingmannanefndarinnar um aðild þeirra að hruninu. Að vísu er enn ekki öll nótt úti, en harður siðferðisbrestur hefur orðið. Mátti Alþingi þó ekki við meiru af slíku. Mesta ábyrgð á dapurri niðurstöðu gærdagsins bera fimm þingmenn Vinstri grænna. Reyndu í gær að hindra uppgjör á aðild einstakra ráðherra í stjórn Geirs Haarde að hruni Íslands. Það var ljótur leikur. 21 Jan 2012 05:34:06 GMT