| Forsíða | 11.03.2010 |
|||||||
|
|
Safn GPS punkta
Flestar LEIÐIR í þessu safni eru teknar af kortum, sumum mjög gömlum.
Þær eru ekki sannreyndar. Þær geta verið ófærar. Ef til vill hafa sumar alltaf verið of brattar fyrir hesta. Sumum hefur verið spillt með girðingum, skurðum eða af tímans tönn, til dæmis týnst í mýrum.
Flestir FERLAR í þessu safni eru mældir í ferðum mínum eða annarra.
Þá má ekki taka bókstaflega, vöð breytast, girðingar og skurðir koma og jafnvel fara. Í öllum tilvikum þurfa ferðamenn að meta aðstæður á staðnum, ekki treysta punktum.
Allir bera ábyrgð á eigin ferðum og geta ekki vísað henni á aðra, sem reyna að leiðbeina þeim með útgáfu leiðarpunkta og ferilpunkta af þessu tagi.
Ég vænti athugasemda frá notendum. Vinsamlega hafið samband í tölvupósti við jonas@hestur.is. Ég reyni að koma þeim á framfæri í lýsingum á leiðum og ferlum. Best væri að fá nýja ferla senda sem viðhengi í tölvupósti.
|
|
|