Forsíða
jonas.is
07.09.2010
 

Fjölmiðill

Dags frá: (t.d. 01.01.1973)
//
Dags til: (t.d. 01.01.2001)
//
Leitarstrengur: (t.d. Hótel Holt)

Inniheldur ekki:

Veitingarýni


    30.08.2010
    Tíminn stendur kyrr
    Annað hvort er ég orðinn magur eða Ítalía feit, því að nú er pláss í bekkjum og stólum. Því get ég fylgt afastrákunum, sérfræðingum í pitsum og pöstum, sem segja þær svaka góðar á Ítalíu. Appelsín-glösin taka líka hálfan lítra og svo er íspinni ókeypis í eftirrétt. Fékk mér fisk dagsins að venju. Lúðan var fín, matreiðslan eins og fyrir rúmu ári. Smálúða með sveppum og blaðlauk í hvítvíns-rjómasósu og hvítum kartöflum. Tíminn stendur hér kyrr. Þröngur og notalegur og ætíð fullsetinn. Mikið skvaldur, ekta ítalskt. Gæðin traust, enda stjórna hér Ítalir. Pítsur og pöstur kosta 2350 krónur, fiskur 3250.

    24.08.2010
    Minni agi á Sjávarbarnum
    Hlýrinn var fínn, enda hóflega eldaður. En fiskur dagsins er alltaf hlýri, þegar ég kem á Sjávarbarinn. Og alltaf lauksteiktur, borinn fram með rækjum, pönnusteiktum kartöflum og jöklasalati. Alltaf bara ein uppskrift, dálítið þreytandi. Kartöflurnar minntu á pönnusteikta stöppu. Þetta sleppur, en agi hefur minnkað á Sjávarbarnum. Enginn skilur íslenzku og vinur starfsfólksins hefur gamanmál við diskinn og tefur staffið. Alltaf einhver vinur, en ekki sá sami. Kokkurinn reyndi að selja mér hlaðborð í stað fisks dagsins, nennti ekki að elda. Eigandinn ætti að vera minna í sjónvarpinu og meira á staðnum.

    17.07.2010
    Nýnorræn Narfeyrarstofa
    Narfeyrarstofa í miðbæ Stykkshólms býður okkur bláskel, fisk og rituegg úr Breiðafirði og ís frá Erpsstöðum. Lambakjöt frá Eiríki á Berserkseyri og hvannaræktað lamb frá Höllu á Steinólfsstöðum. Kryddið er úr náttúrunni. Borðbúnaður er líka úr nágrenninu, úr Fagradalsleir, mótaður af Sigríði Erlu Guðmundsdóttur. Húsið er 109 ára gamalt og hefur verið fært í upprunalegt form. Nú eiga það og reka Steinunn Helgadóttir og Sæþór H. Þorbergsson. Matstofan er á nýnorrænni línu eins og Dill í Norræna húsinu og Friðrik V, sem lokaðist því miður, á Akureyri. Matreiðslan ber af öðrum á Vesturlandi.

    14.07.2010
    Haiti flutt í verbúðirnar
    Eitt bezta kaffihús landsins er flutt í verbúðirnar við Geirsgötu, í næstu verbúð við veitingahúsið Höfnina. Haiti hefur um skeið glatt kaffiunnendur með kaffi, sem Elda Þórisson fær frá ættingjum sínum á Haiti. Fyrir utan allt þetta venjulega latte og cappucino fæst þar fínt tyrkneskt kaffi og aldeilis frábært arabískt kaffi. Hvort tveggja er ketilkaffi, það arabíska með kardimommum. Kaffið frá Haiti hentar vel í þessa lögun, virkar fínt fremur en gróft, þótt ketilkaffi sé. Kosturinn við nýja staðinn er, að þar er pláss fyrir viðskiptavini, sem tæpast var á gamla staðnum í Tryggvagötu.

    03.07.2010
    Herramannsmatur í Höfninni
    Í verbúðunum við Geirsgötu eru komnar búðir og matstaðir fyrir ferðamenn, í nágrenni hvalaskoðunarskipa. Þar rekur Brynjar Eymundsson kokkur matstaðinn Höfnina með áherzlu á fiskrétti. Á kvöldin er meðalverð, svipað og á Þremur frökkum. Í hádeginu er súpa og fiskur í boði á 1680 krónur. Gulrótarsúpa með kotasælu og brauði var veruleg fín, en brauðið var ekki merkilegt. Grillaður hlýri var mjög næmt eldaður herramannsmatur með góðum kartöflum og mildri grænpiparsósu, svo og fallegu og fersku salati. Staðurinn er hvítmálaður og fremur hrár, með grófu burðarvirki úr timbri. Árvökulir fagmenn í þjónustu.

    28.06.2010
    Síðasta karlavígið að bila
    Í höfuðríki matargerðarlistar er sjálfgefið, að karlinn sé í eldhúsinu og konan í borðsalnum. Þannig eru frönsk veitingahús. Fátítt er, að konur fái Michelin-stjörnur. Hér lærðu konur heimilismatreiðslu í húsmæðraskóla og karlar veizlumatreiðslu í hótelskóla. Nú breytist þetta, konur sækja til valda í karlaríki veitinga. Hrefna Rósa Sætran eldar á Fiskmarkaðinum, einu bezta veitingahús landsins. Íris Hera Norðfjörð á Kryddlegnum hjörtum, Sólveig Eiríksdóttir á Gló og Helga Sörensdóttir á Krúska. Í veitingaríkjum kvenna er ævinlega lögð áherzla á hollustu og gæði umfram myndlist og stæla.

    21.06.2010
    Frábær veitingahús lítil
    Fjölgað hefur litlum veitingahúsum, þar sem eigandinn er á gólfinu í eldhúsi eða sal. Yfirleitt bjóða þeir góðan mat og einkum þó gott hlutfall verðs og gæða. Í öllum verðflokkum. Dýr staður er Dill í Norræna húsinu, meðaldýrir Þrír Frakkar á Baldursgötu og Jómfrúin í Lækjargötu. Flestir eru þó ódýrir. Þar á meðal eru staðir framandi matreiðslu, Balkanika á Vitastíg, Santa Maria á Laugavegi, Shalimar í Austurstræti og Brasilía á Skólavörðustíg. Aðrir eru íslenzkir, svo sem Loki á Lokastíg, Kryddlegin hjörtu á Skúlagötu, Gló á Engjategi og Garðurinn á Klapparstíg. Frábærir staðir á góðu verði.

    20.06.2010
    Sólkolinn á Akureyri
    Kom til Akureyrar. Leið strax eins og heima hjá mér. Fór beint í fiskbúðina á Garðarsbraut. Þar var tekið móti mér með sólkola, sjaldséðum hér á bæjum. Líka með steinbíti og hlýra og ekki sízt með ófrystri bláskel. Þetta er bara orðið eins og á höfuðborgarsvæðinu. Man þá tíð, þegar ekki var hægt að kaupa fisk á Akureyri. Og er þar mátti bara kaupa fisk í keðjuverzlunum, frosinn. Nú hafa kröfur manna aukizt. Fiskbúðin á Akureyri er vel spúluð og hrein, án fisklyktar. Það er atriði, sem sumir fisksalar flaska á. Fiskifýla fælir frá viðskiptavini og sezt í föt. Nútími matgæðinga er kominn til Akureyrar.

    17.06.2010
    Neyzla sem persónutjáning
    Sumt ungt fólk vill tjá persónu sína með neyzlu. Ung kona skýrði fyrir mér, hvernig skíði og snjóbretti og misjöfn notkun þeirra lýstu persónu sinni. Slíkt fólk fer á veitingahús til að lýsa persónu sinni. Telur sig í einum hópi, en ekki í öðrum. Hleypur eftir dellum í vöru og þjónustu. Lætur sér í léttu rúmi liggja, þótt seljendur misnoti það. Leggur lítið upp úr vandaðri matreiðslu góðra hráefna. Sækir fræga skyndibitastaði, sem eru dýrari en góð matarhús. Sækir matstaði fjölmiðlunga, sem almannatenglar setja á stall og fjölmiðlar fjalla um. Hefur lítinn áhuga á gamaldags gæðum. Ímyndin er allt.

    15.06.2010
    Kæruleysi á Brasilíu
    Kæruleysi á Brasilíu Brasilía við Skólavörðustíg 14 er spennandi vegna framandi eldamennsku á portúgölskum grunni Brazilíu. Eldamennskan hefur reynzt mér upp og ofan. Hef fengið þar þykka og öfluga baunasúpu Feijoada og milt grillaðan þorsk. Djúpsteiktur þorskur um daginn var hins vegar greinilega frosinn. Var borinn fram með kassava-graut og sígildu jöklasalati bæjarins. Mér finnst kæruleysi læðast inn. Skipulega tilfinningu vantar í matreiðsluna. Verðið er einnig heldur hærra en tíðkast á etnískum matstöðum borgarinnar, 1900 krónur á fiski og kjúklingi. Betri mat má fá á 1500 krónur sums staðar í miðbænum.

    13.06.2010
    Frábær súpa úr konueldhúsi
    Kryddlegin hjörtu á Skúlagötu 17 eru einkum súpustaður. Þar fást í hádeginu fjórar tegundir súpu með brauði staðarins og grænmetissalati á 1490 krónur. Bezta súpan var kókos- og karríkrydduð grænmetissúpa, rosalega bragðsterk. Góð var líka sterk sjávarréttasúpa, en þær fást góðar víðar. Paprikusúpa var líka góð. Lakari var salsasúpa með kjúklingi, hlutlaus súpa. Stórfínt brauð var úr byggi og spelti með tveimur tegundum af hummus. Salatið frambærilegt. Þar voru líka ávextir á borð við epli, appelsínur og ananas í eftirrétt. Fremst í hópi frábærra konu-eldhúsa, sem nú ryðja sér til rúms í borginni.

    12.06.2010
    Jöklasalat brúnt í sárið
    Jöklasalat er vinsælt á matstöðum, því að það er stökkt. Hins vegar er það bragðlaust. Verra er, að það verður brúnt í sárið, þegar það er sneitt og síðan látið liggja. Þannig er jöklasalat víða borið fram. Svo sem á Saffran í Glæsibæ. Mér finnst skemmt salat ólystugt, en unga fólkið lætur sig hafa það. Lætur líka selja sér pólitíkusa, sem eru skemmdir í kantinn. Toscana-þorskur dagsins á Saffran kostaði 1490 krónur, borinn fram með rófublöndu, paprikusósu og áðurnefndu jöklasalati. Fremur slappur réttur. Betri var bráðsterk, pakistönsk karrísúpa með kjúklingi, sem fylgdi fiski dagsins.

    07.06.2010
    Krúska fæst í Krúsku
    Krúska fæst núna í Krúsku. Um áratugi einkennisfæða náttúrulækningafólks. Blanda af grjónum, flögum, klíði, fræjum og rúsínum. Fínt er, að matstofa á vegum félagsins hafi þennan sögufræga mat á boðstólum. Að vísu er hann ekki borinn fram á staðnum, en fæst í pökkum. Þar eru byggflögur, hafragrjón, rúsínur, rúgflögur, hafraflögur, hveitiklíð og hörfræ. Músli gamla tímans. Að öðru leyti er ágætur matur í boði, réttur dagsins á 1450 krónur. Í gær var of dauft kryddaður tælenskur kjúklingur með hrásalati, daufri kryddsultu og hýðishrísgrjónum. Kjöt er að vísu ekki kórrétt fæða grænmetisfólks.

    22.05.2010
    Frábær þorskur og nautalund
    Fékk frábæran þorsk og frábæra nautalund í Dill fyrir helgina. Einkum var mikilvægt, að eldunartími var nákvæmlega réttur. En þetta geta auðvitað fleiri kokkar en þeir, sem eru á Dilli. Staðurinn sérhæfir sig hins vegar í staðbundnum matvælum, til dæmis kryddi úr garðinum. Eldamennskan einkenndist þar að auki af matvinnslu. Kokkarnir búa til kryddaðar froður, hlaup, mauk og stöppur. Verra er, að maturinn var kaldur, þegar hann kom á borð. Stælar gengu langt, þegar eftirrétturinn var eitt jarðarber með ýmsu skrauti, svo sem jarðarberjafroðu og ýmsum dropum. En fiskurinn og kjötið var fínt.

    21.05.2010
    Fín stemmning í Dilli
    Dill í Norræna húsinu er grein af sama meiði og frægt Noma í Kaupmannahöfn. Stundar norræna eldamennsku. Notar staðbundin hráefni, til dæmis krydd úr eigin garði og kaupir beint frá bónda. Gælir líka við efnafræði að hætti El Bulli. Breytir til dæmis mat í froðu eða hlaup og vökva í fast efni. Friðrik V var svipaður, en gafst upp, enda á Akureyri. Dill gengur vel, var fullt á fimmtudegi og stemmning fín. Þriggja, fimm og sjö rétta matseðill, sem skipt er um vikulega. Sérvín með hverjum rétti. Sjö réttir með víni kosta 19000 krónur á mann, þríréttað án víns 6900 krónur. Nokkrir staðir eru þó dýrari.

    20.05.2010
    Hádegismatur á 1200 krónur
    Santa Maria á Laugavegi 22 býður hádegismat á 1200 krónur, súpu og aðalrétt. Í gær var súpan matarmikil baunasúpa. Aðalrétt má fá hvern sem er af seðli. Venjulega vel ég mexikóska enchilada-pönnuköku með kjúklingi, annað hvort venjulega eða í mole-súkkulaðisósu. Þetta er ágætar pönnukökur, en fremur milt kryddaður matur fyrir minn smekk. Nokkur veitingahús í bænum bjóða mat á þessu ofsalága verði. Þau eru búlgarskt Balkanika á Vitastíg 10, tælenskur Krua Thai á Tryggvagötu 14, Prikið í Bankastræti 12, Loki á Lokastíg 28, indverskt Shalimar í Austurstræti 4 og Brasilia á Skólavörðustíg 14.

    17.05.2010
    Frakkar langt á undan
    Le Fooding veitingastíllinn í Frakklandi brýtur hefðina frá Michelin á bak aftur. Nýi stíllinn tekur mið af almennri vellíðan gesta. Fólki getur liðið vel á skyndibitastað, stílblöndustað eða á Bæjarins beztu. Ekki bara á Noma eða Dill. Fooding er alþýðlegur stíll. Vellíðan getur stafað af góðum mat, góðu umhverfi og stemmningu, nýjungagirni, einlægni og tízkuhyggju. Tímarit og leiðsögurit Le Fooding um Frakkland er svipuð bylting frá 1999 og "Nýja eldhúsið" franska var 1973. Er norræn veitingahús eru árið 2010 að meðtaka franska byltingu frá 1973, eru Frakkar með nýja byltingu í millitíðinni.

    17.05.2010
    Ný matarbylting í Frans
    Enn gerist allt í Frakklandi, sem máli skiptir í matargerð. Fyrst franska og fína eldhúsið, sem fór fyrir löngu um allan heim. Síðan komu 1973 samhliða Nýja eldhúsið og Eldhús jarðarinnar. Cuisine Nouvelle tók inn nútímann og Cuisine Terroir tók inn hráefni héraðsins. 30 árum á undan Cuisine Nordique, norrænu afbrigði. Jafnvel blandstíllinn, Cuisine Fusion var að mestu þróaður í Frakklandi. Þar reis 1999 nýr stíll í matargerðarlist, le Fooding, sem hafnar öllum eldri reglum. Í áratug hefur ársrit með veitingarýni um París predikað þessa stefnu. Það er Le Fooding, sem leysir Michelin af hólmi.

    Næsta síða

Leitarskilyrði

Leitin skilaði:
558 greinum.

Möguleikar á röðun
Fyrirsögn í stafróðsröð
Elztu greinar fyrst
Yngstu greinar fyrst